Dýralíf
Á seinasta jökulskeiði, Wurm-jökulskeiðinu, voru margar dýrategundir uppi en mest áberandi þeirra voru m.a. matsódónar eða mammútar, sverðkettir, loðnir nashyrningar og risaletidýr.
Sverðkötturinn var rándýr. Hann var á stærð við tígrisdýr og hafði tvær stórar, langar tennur. Sverðkötturinn dó út fyrir um 11 þúsund árum.
Mammútarnir voru loðnir fílar en ekki eins háfættir og fílar nú til dags. Þeir voru veiddir víða í Ameríku og Evrasíu af mönnum.
Mammútarnir voru loðnir fílar en ekki eins háfættir og fílar nú til dags. Þeir voru veiddir víða í Ameríku og Evrasíu af mönnum.
Risaletidýrin voru líka áhugaverð dýr. Þau voru tröllvaxin og náðu allt að 6 metrum á lengd.
Alls dóu um 200 spendýra tegundir en var það líklegast vegna loft- og veðurfars breytingum.